Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:25]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég kom inn á ætlaði ég að fara aðeins í gegnum rök þeirra sem tala fyrir þessari samþykkt og síðan koma inn á rök þeirra sem vilja ekki samþykkja þetta frumvarp sem við erum að ræða, bókun 35. Rökin á móti eru þau að það sé verið að gera erlendar reglur rétthærri íslenskum lögum, að jafnvel þó að þetta fari í gegnum Alþingi sé uppruni reglnanna frá Evrópusambandinu og þær því ekki íslenskar í reynd. Svo eru það almennar áhyggjur út af því að þrátt fyrir að við getum hafnað því að taka upp EES-löggjöf þá höfum við aldrei gert það, að við verðum bara stimpilpúði fyrir Brussel. Þriðji þátturinn eða punkturinn sem má benda á sem rök á móti er að í reynd verði framkvæmdir þannig að þegar regluverk er samið í Brussel muni það alltaf verða að lögum hér á landi, de facto sé því löggjafarvaldið framselt til Evrópu.

Mig langaði að fara í gegnum báðar hliðar í þessari umræðu fyrir okkur sem erum aðeins í vandræðum með þetta. Ég hef verið tiltölulega neikvæður gagnvart þessu í gegnum árin en svo eru þarna ákveðnir hlutir á bak við þetta líka sem geta verið jákvæðir. Ég er þeirrar skoðunar að EES-samningurinn hafi verið gríðarlega gjöfull fyrir íslenskt samfélag á mörgum sviðum. Út frá mínum geira séð, sem er flugið í Evrópu, er það gríðarlega mikilvægt sem hefur náðst í gegnum EES-samninginn, eins og með flugið yfir hafið, að við gátum verið hluti af því máli og komið að því, sem gat svo byggt upp flugið hérna með öflugum hætti upp úr 2010. Síðan er það sem ég kom inn á með málmframleiðsluna. (Forseti hringir.) Þetta eru því plúsar og mínusar. Ef hv. þingmaður gæti komið með eitthvað um þetta.