Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:30]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir ræðuna. Mig langar að vera á sömu slóðum og þegar ég var að ræða við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson og vil lesa hérna í greinargerðinni, með leyfi forseta:

„Bókun 35 er þjóðréttarleg skuldbinding sem lætur EFTA-ríkjunum eftir ákveðið svigrúm um innleiðingu efnisskyldunnar. Þannig felst í bókun 35 árangursskylda en ekki regla sem segir til um hvernig árangrinum skuli náð.

Í bókuninni kemur fram að hún eigi aðeins við um ákvæði EES-réttar sem „komin eru til framkvæmdar“. Til þess að ákvæði sem innleiðir EES-reglu njóti forgangs þegar lagaákvæði rekast á þarf EES-reglan að leiða af gerð sem er hluti af EES-samningnum […]

Ég skil þetta þannig að þegar fríverslunarsamningurinn er gerður þá eru í rauninni EFTA-löndin og ESB-löndin að semja um leikreglur og því er lent í rauninni með þeim hætti að byggt er á ESB-reglum og þær eru innleiddar með ákveðnum hætti samkvæmt þessum leikreglum. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Er ekki eðlilegt að þetta sé gert með þessum hætti sem hér er lýst? Telur hv. þingmaður að það væri betra að gera þetta með einhverjum öðrum hætti en hér kemur fram?