Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Ég hjó eftir að þetta var, að ég held, orðrétt sama spurningin og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson fékk. (Gripið fram í.)Ég held að það sé ekki hægt að svara þessari spurningu nema lesa regluna sjálfa því að hún talar svo skýrt:
„Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.“ — Og ég hef nú farið yfir það í máli mínu hvernig það hefur virkað. — „Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.“
Saga málsins er auðvitað sú að þessi átök komu upp á sínum tíma þegar við vorum að innleiða EES-samninginn. Þá tóku menn þessa rökræðu á nokkurn veginn sömu forsendum og við erum að gera hér, enda hefur í eðli sínu ekkert breyst í þessu regluverki. Niðurstaðan þá var að þetta stæðist ekki stjórnarskrá. Þess vegna var reglan innleidd á sínum tíma sem túlkunarregla, þ.e. regla um að íslenskir dómstólar þyrftu að horfa til regluverks Evrópu þegar þeir væru að dæma hér heima. Þetta var, hvað á maður að kalla það, þrautalending eða nauðlending á málinu á sínum tíma vegna þess að niðurstaða helstu fræðimanna þá var algerlega skýr. Þetta stæðist ekki stjórnarskrá. Ég get farið yfir það, hv. þingmaður óskar eftir því, (Forseti hringir.) betur í seinna andsvari hver eðlisbreytingin er svo á þeirri túlkunarreglu og því sem við erum að fást við hér í dag.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmann á að ekki má lesa upp prentað mál nema með leyfi forseta.)