Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:36]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Mig langar nú að byrja á því að segja hv. þingmanni að ég les þetta ekki eins. Ég leyfi mér að benda hv. þingmanni á að til að mynda fjórir fyrrverandi hæstaréttardómarar og lögfræðingar hafa haldið því fram að nýja frumvarpið standist ekki stjórnarskrá þannig að það er ekkert bara sá sem hér stendur sem hefur áhyggjur. Það hefur verið í gegnum tíðina, hvað á ég að segja, ákveðið blæti hér fyrir áliti erlendra sérfræðinga og menn verið kallaðir til svona eftir því sem þeir hafa talið henta sínum málstað. Einn af þeim sem hafa verið kallaðir til til þess að útskýra fyrir Íslendingum hvernig þeim beri að haga sér gagnvart Evrópusambandinu og þar af leiðandi EES-samningnum er maður sem ég hygg að allir hér í þingsal muni kannast við og heitir Carl Baudenbacher, fyrrverandi dómari EFTA-dómstólsins. Hann lætur hafa eftir sér að það sé óþarft að hrófla við kerfinu ef ekkert raunverulegt vandamál hefur komið upp í 30 ár. Það má nánar lesa sér til um þessi ummæli á vef sem heitir Heimssýn. Ef hv. þingmaður hefur áhuga á því er hægt að nálgast frekari upplýsingar þar.

Í því máli sem hér er til umfjöllunar felst að sett er afturvirk forgangsregla. Þetta er ekki hefðbundin Evrópuinnleiðing. Þetta er miklu stærra heldur en mörg önnur mistök sem hafa verið gerð hér, samanber innleiðingu á reglum um endurmenntun atvinnubílstjóra sem ég hef nú látið fara talsvert í taugarnar á mér hér í gegnum tíðina. En þetta er af allt annarri stærðargráðu og hefur allt aðrar og miklu meiri afleiðingar.