Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:56]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög gott andsvar. Það er eðlilega spurt hvernig þetta hefur þróast, þessi afstaða mín í þessu máli og það er alveg rétt, ég var ekki hrópandi í gær í þessum stóli. Ég gerði það einu sinni í byrjun þings og mun ekki gera það aftur í bili. Alla vega hef ég ekki séð ástæðu til þess. Ég er annars almennt frekar rólegur og yfirvegaður. Ég get heldur ekki skýlt mér á bak við að það hafi komið maður til mín og bara sagt mér að þetta væri allt í lagi, eins og gerðist hérna hjá einum stjórnmálaflokki, að þau skiptu algerlega um skoðun í þessu máli eftir að hafa fengið kynningu hjá einhverjum einstaklingi.

Ég get hins vegar alveg upplýst hv. þingmann um að ég hef haft efasemdir um þetta mál frá upphafi og held hreinlega að þetta sé í fyrsta skipti sem ég er að tjá mig um þetta mál hér í pontu Alþingis.