Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir andsvarið. Það er alveg rétt, við hv. þingmaður höfum setið hérna löngum stundum saman og hef ég ekki nema góða sögu af því að segja. Það er spurt um framhaldið. Ég er ekki með einhverja töfralausn á framhaldinu, virðulegur forseti, ég skal alveg viðurkenna það að ég er ekki með einhverja töfralausn því. Það sem ég hef hins vegar verið að segja er að ef í þessu frumvarpi leikur vafi á því hvort fullveldi þjóðarinnar sé með einhverjum hætti ógnað þá ber okkur að staldra við og hugsa málið. Það er alla vega sú sannfæring sem sá sem hér stendur hefur gagnvart þessu máli. Ég held að það væri góð leið að reyna að vinna þetta betur og ef við lendum á sama stað, sem gæti vel verið, þá þarf bara að skera úr um þetta fyrir dómstólum.