Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég afsaka þennan misskilning hjá mér. Hann er kannski tilkominn vegna þess að ég held raunverulega að hæstv. ráðherra Eyjólfur Ármannsson hafi einmitt sagt að hann hafi ekki skipt um skoðun, sem er stórundarlegt, en að hann ætlaði samt að styðja þessa bókun. Þar liggur kannski misskilningurinn hjá mér varðandi það um hvaða ráðherra var rætt. Ef þú telur að þetta mál brjóti gegn stjórnarskránni en ætlar samt að samþykkja það þá er límið ansi sterkt í stólunum. Þannig að þetta virðist það sama og í öðrum málum, það er eins og enginn treysti sér til að koma upp og tala fyrir málunum sem er verið að koma með til okkar hér í þessu þingi. Ég spyr því í seinna andsvari hvort hv. þingmaður telji ekki bara að það sé verið að tefja önnur mál með því að setja þetta mál á dagskrá.