Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:29]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann kom í ræðu sinni aðeins inn á fyrirbærið ótta og hræðslu, ef ég fer ekki með rangt mál, við ESA, eftirlitsstofnunina. Ég tel að þessi umræða sé byggð á ákveðnum misskilningi, ekki hjá hv. þingmanni heldur almennt, varðandi þetta fyrirkomulag sem eftirlitsstofnunin er. Hún er auðvitað apparat sem við höfum sjálf komið okkur upp til að gæta okkar réttinda og hagsmuna í EES-samstarfinu og við þurfum ekkert að óttast þar. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom inn á það í sínum andsvörum hvað taki við ef við ákveðum að fara ekki þessa leið með lagasetningu. En mig langaði að spyrja hv. þingmann, af því að hann byggði ræðuna svolítið á svarinu okkar 2021 og þá var þessi dómur Hæstaréttar auðvitað ekki fallinn: Gerir hv. þingmaður ekki greinarmun á áliti og rökstuðningi eftirlitsstofnunarinnar, sem við höfum þó sett á laggirnar, og síðan æðsta dómstóls landsins? Gerum við ekki greinarmun þar á? (Forseti hringir.) Hljótum við ekki að líta það öðrum augum hvort sem skilaboðin koma frá okkar eigin dómstóli eða frá eftirlitsstofnuninni?