Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Það er áhugavert að fylgjast með umræðunni hérna og þeim orðaskiptum sem eiga sér stað hér og vangaveltum. Mig langar að bæta aðeins í þann bunka sem hér er kominn og leggja enn frekar orð í belg í minni þriðju ræðu hér varðandi þetta ágæta mál. Ég velti því upp, held ég, í fyrstu ræðu hvernig þessi nálgun eigi að vera og öll þau álit sem liggja fyrir og það er álit frá Lögmannafélagi Íslands, laganefnd og fjöldi fræðimanna sem hefur varað við því að veita erlendum stofnunum heimild til þess að kveða upp bindandi ákvarðanir, þ.e. ef við erum að fara að stíga þetta skref og það er náttúrlega matskennt, eðlilega, öðruvísi værum við ekki að skiptast á skoðunum um þetta ágæta mál. Það sem snýr að því að við séum að færa vald úr höndum þjóðarinnar og Alþingis, og þá inn í þær stofnanir sem lúta ekki lýðræðislegri ábyrgð gagnvart okkur sjálfum, þetta er stór spurning og mér finnst við ekki hafa fengið svarið við þessari spurningu. Ef þessi leið er farin og þessi álit sem allir þessir fræðimenn hafa nú komið inn á í gegnum tíðina reynast á rökum reist þá erum við komin í ákveðinn farveg sem ég tel að sé alls ekki sú vegferð sem stór hluti þjóðarinnar vill vera á. Ég dreg það verulega í efa að þegar öllu verður á botninn hvolft og skoðað í alla potta, virðulegi forseti, þegar á að sigla með okkur yfir Atlantsála til Evrópusambandsins, þá verði nú annað hljóð í strokknum hvað það varðar. Mér finnst við vera komin á þann stað og hef lýst því hér yfir að ég er mótfallinn því að fara þessa leið sem hér er boðuð og þá er líka alltaf þetta sem við veltum fyrir okkur vegna þess að ég tel það vera ákveðið skref og ef við erum að fjalla hérna um að við séum að ganga á fullveldið, höggva í það, það eru margir fræðimenn sem vilja meina það, er þá ekki æskilegast að við spyrjum þjóðina ráða? Það er nú hinn lýðræðislegi vilji sem er mjög víða og menn tala hér hátt á torgum um að þjóðin vilji þetta og þjóðin vilji hitt og vitna í skoðanakannanir, þannig að þá er það hlutur sem við verðum, held ég, að skoða mjög gaumgæfilega.
Ég varpa þessu bara fram, virðulegi forseti, vegna þess að í ljósi þess hversu skiptar skoðanir eru á því hvert mat manna er á þessu frumvarpi sem við erum að fjalla hérna um og það hafa fallið mjög mörg stór orð um að það sé hér brot á stjórnarskrá, að við séum að ganga á fullveldið og annað, þetta spilar inn í þjóðaröryggi og orkuöryggi samhliða þessu, að þá er nú alltaf best þegar svona er fyrir framan að hægja aðeins á sér, anda í kviðinn og hugsa málið aðeins upp á nýtt því það er alveg ljóst í mínum huga að vegferð sem byggist á því að opna hurð og hurðin er þannig gerð að við getum ekki lokað henni, að það sé útilokað mál fyrir okkur að loka hurðinni aftur — þá væri, held ég, skynsamlegra fyrir okkur að bíða aðeins með það að vera að opna hér hurðir tvist og bast og hleypa hér öllu inn og missa völdin á því öllu saman sem við viljum hafa hjá okkur.