Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir svar hans og langar kannski í framhaldinu að velta annarri spurningu upp. Nú er hv. þingmaður mikill búmaður og varkár en oft þarf að taka ákvarðanir snöggt. Hv. þingmaður segir í ræðu að við þurfum að taka skrefin varlega, bíða, hinkra og sjá. Með hvaða hætti getum við í rauninni fengið almennilega úr því skorið hvort þetta stangist á við stjórnarskrá eða ekki, af því að hér fáum við úr báðum áttum bæði sjónarmið frá mjög virtum lögfræðingum? Hvernig getum við mögulega fengið endanlega niðurstöðu í það hvort þetta stangist á við stjórnarskrá eða ekki?