Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það bætist nú frekar í bunkann með þungum spurningum þegar líður á kvöldið, heyrist mér. En í hlutarins eðli þá er það nú þannig að hvort sem verið er að sækja um aðild að Evrópusambandinu eða fjallað um bókun 35 og annað og við ætlum að leyfa þjóðinni að ráða því hvert förinni verði heitið, þá verður náttúrlega alltaf að fara fram upplýst umræða um þá hluti sem á að fara að greiða atkvæði um. Og miðað við ganginn á umræðum okkar hér á Alþingi nú um stundir þá eigum við ansi langt í land með það að geta skýrt það út almennilega meira að segja hvert fyrir öðru. Hvernig heldurðu að það verði þá að útskýra það fyrir almenningi hvort þetta sé heillaskref fyrir þjóðina eða ekki? Við eigum langt í land hvað það varðar og ég held að (Forseti hringir.) það sé mjög skynsamlegt að við hægjum bara ferðina og skoðum málið mun betur.