Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að koma hér upp og taka til máls um bókun 35 við EES-samninginn, ákvæði sem í fyrstu virðist tæknilegt en snerti í reynd eina af grunnstoðum lýðveldisins, sambandið milli fullveldis, lýðræðis og alþjóðlegrar samvinnu. Við höfum verið aðilar að EES-samningnum í rúmlega 30 ár. Með honum opnaðist aðgangur að innri markaði Evrópusambandsins, aðgangur sem íslensk fyrirtæki, neytendur og almenningur hafa notið góðs af. Samhliða þessari aðild hafa fylgt skuldbindingar og ein sú dýpsta og umdeildasta er einmitt sú sem við erum að ræða hér í kvöld og um þessar mundir, bókun 35.
En hvað felur bókun 35 í sér í rauninni? Bókun 35 felur í sér að Ísland og önnur EFTA-ríki innan EES skuldbinda sig til að tryggja að gerðir sem teknar eru upp í sameiginlegu EES-nefndinni verði virkar í landsrétti. Með öðrum orðum: Reglur sem samþykktar eru af sameiginlegum stofnunum verða að taka gildi með þeim hætti að þær séu raunhæfar og bindandi hér á landi og ekki aðeins táknrænar. Þetta ákvæði var sett fram vegna þess að aðildarríki ESB eru öll bundin af beinum réttaráhrifum reglugerða og tilskipana innan eigin réttarkerfis. Til að tryggja að EES-ríkin sem eru utan ESB, og vonandi verðum við alltaf utan ESB, gætu tekið þátt á jafnréttisgrundvelli var nauðsynlegt að skapa formfestu og tryggingar fyrir því að reglurnar giltu einnig í þeirra löggjöf án tafa eða óvissu. Þar kemur bókun 35 inn.
Ég held að það sé ágætt í upphafi þess sem ég segi, og er að koma í fyrsta skipti í ræðu, að velta fyrir mér kostum og göllum bókunar 35 í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið hér í þingsal. Ef við byrjum á að ræða aðeins kostina, bókun 35 á að skapa traust. Hún gefur samstarfsríkjum Íslands það mikilvæga öryggi að reglur sem samþykktar eru innan sameiginlegs ramma taki einnig gildi hér. Þetta traust er forsenda þess að við höfum jafnréttisaðgang að innri mörkuðum.
Með bókun 35 er dregið úr lagalegri óvissu. Reglurnar eru ekki einungis teknar upp með táknrænni tilvísun í lög heldur verða hluti af íslenskum rétti með skýrum og raunverulegum hætti. Þetta auðveldar stjórnsýslu, verndar fyrirtæki og tryggir réttaröryggi. Ef Ísland samþykkir reglugerð í sameiginlegu EES-nefndinni en lætur hana ekki taka gildi í landsrétti skapast ágreiningur við samningsaðila. Slíkt getur leitt til málaferla, taps á trúverðugleika og jafnvel að hlutar markaðarins lokist fyrir íslensk fyrirtæki. Bókun 35 er því eins konar trygging gegn vanefndum. Þetta er m.a. það sem hefur verið rætt hér í þingsal og hefur verið reifað sem hluti af því að við eigum að standa vörð um bókun 35.
En hver er þá gagnrýnin á bókun 35? Af því að eins og við vitum vel hefur hún ekki einungis verið lofuð hér í þingsal, hún hefur líka verið harðlega gagnrýnd, sérstaklega af þingflokki Miðflokksins og fleirum. Ég heyri það mjög sterklega að þingmenn Framsóknarflokksins hafa verulegar efasemdir, kannski ekki um bókunina sjálfa heldur um það hvort við eigum að bíða og hvort við eigum að fresta gildistöku bókunarinnar þangað til við erum búin að fá alveg úr því skorið að hún stangist ekki á við stjórnarskrá. Hver hefur verið helsta gagnrýnin? Jú, það alvarlegasta við bókun 35 er líklega að hún dregur úr hlutverki Alþingis. Þegar Ísland samþykkir gerð í sameiginlegu EES-nefndinni er í reynd búið að ákveða að hún skuli innleidd. Þá er Alþingi ekki að taka afstöðu að nýju heldur einungis að staðfesta ákvörðun sem tekin hefur verið annars staðar, jafnvel án þess að íslensk stjórnvöld hafi haft afgerandi áhrif. Við þurfum því að spyrja okkur: Á Alþingi að vera nauðugur innleiðandi að reglum sem settar eru í Brussel ef fullveldið á að halda gildi sínu? Ef við samþykkjum reglur án raunverulegs umræðugrunns og með pólitískri sjálfvirkni þá eigum við á hættu að fjarlægjast kjósendur. Lýðræðið byggist á því að ákvarðanir séu teknar af fulltrúum fólksins, ekki með formsatriðum sem fela vald annars staðar. EES-reglurnar eru mótaðar með hagsmuni stærri ríkja í huga, ekki endilega lítillar eyþjóðar á norðurhjara Evrópu. Bókun 35 getur hindrað Ísland í að haga löggjöf sinni á þann hátt sem hentar best okkar eigin samfélagi, aðstæðum og markmiðum. Hér hefur verið reifuð sú gagnrýni sem hefur verið á bókunina.
Virðulegur forseti. EES-samstarfið hefur verið kallað tæknilegt samstarf en sannleikurinn er sá að það hefur áhrif á nær öll svið samfélagsins. Það snýst ekki lengur eingöngu um viðskipti og vöruviðmið. Það nær til neytendaverndar, fjármálamarkaðar, jafnréttis, stafrænna mála, umhverfismála, orkumála og nú í seinni tíð jafnvel málefna sem má kalla þjóðfélagsstefnu. Í því ljósi verður bókun 35 ekki talin hlutlaus eða formsatriði. Hún er meginverkfæri til að tryggja að þetta víðtæka regluverk verði innleitt hér á landi án þess að Alþingi hafi raunverulega heimild til að segja nei nema með alþjóðlegum afleiðingum.
Umræðan um bókun 35 á ekki að snúast um að vera með eða á móti Evrópu, með eða á móti alþjóðlegu samstarfi. Hún á að snúast um það hvernig við tryggjum að samstarf byggist á gagnkvæmu trausti en einnig á lýðræðislegri ábyrgð og gagnsæi. Við verðum að spyrja okkur: Viljum við áfram vera hluti af EES með núverandi fyrirkomulagi og þá meðvitað samþykkja að víkja í sumum tilvikum lýðræðislegum verkferlum til hliðar í þágu fyrirsjáanleika? Eða viljum við frekar þróa samstarf þar sem aðkoma Alþingis er skýrari, gegnsærri og raunveruleg, jafnvel þótt það þýði að við þurfum að taka áhættu á flóknari samningssamböndum?
Við lifum á tímum þar sem alþjóðleg tengsl verða sífellt flóknari og dýpri en þeim fylgir líka sú krafa að við sem þjóð veljum með opnum augum hvaða vald við viljum framselja, hvenær við viljum verja eigin hagsmuni og hvar við setjum mörkin milli alþjóðlegs samstarfs og þjóðlegra hagsmuna. Bókun 35 er ekki bara formsatriði. Hún er kjarninn í þeirri umræðu. Við eigum að ræða hana af yfirvegun, rökfestu og með það að leiðarljósi að lýðræði, réttarríki og alþjóðasamvinna eru ekki andstæður heldur markmið sem við verðum að vega og meta af ábyrgð. Ég skil það mjög vel þegar hv. þingmenn koma hér hver á fætur öðrum í pontu og eru með mismunandi sjónarmið og lesa upp álit lögfræðinga, hæstaréttardómara, fyrrverandi dómara EFTA-dómstólsins o.s.frv. þar sem mismunandi sjónarmið kallast á, þar sem mismunandi sjónarmið eru um bókun 35 og það er mjög skiljanlegt þegar ákveðnir vel metnir og virtir dómarar og lögfræðingar og lögspekingar koma og segja að þetta gangi gegn stjórnarskrá Íslands. Auðvitað skil ég það mjög vel að það snerti og hreyfi við þingmönnum. Það er okkar heilagasta skylda hér í þingsal að standa vörð um stjórnarskrá Íslands. Svo aftur á móti eru aðrir sem segja að við getum sett lög á Íslandi, við getum áfram haldið að vera bara í því að setja lög en ef við innleiðum bókun 35 þá þurfum við bara að taka það fram ef lögin eiga að ganga lengra en bókun 35 og hafa það þá skýrt í lagatextum. Ég held að þetta sé einmitt það sem er að berjast um í okkur þingmönnum núna. Ég skil mjög vel bæði sjónarmið og ég verð að segja það, virðulegur forseti, að ég er enn þá að vega og meta þá umræðu sem á sér stað hér og ég vona að hún verði lengri og dýpri af því að þetta er virkilega mál sem þarf að ræða í þaula. Við verðum einhvern veginn að ná að tala okkur niður á niðurstöðu í þessu máli.
Ég held að það muni ekkert gerast og ekkert stórkostlegt gerast þó að við myndum jafnvel setja afgreiðslu þessa máls á ís fram á haustþing ef það verður til þess að skýra frekar í rauninni og fá frekari skýringar og jafnvel eyða þeirri óvissu sem hefur verið haldið fram hérna. En þetta eru allt sjónarmið sem þarf að vega og meta. Maður áttar sig líka á því, og ég held að við allir þingmenn höfum verið að fá tölvupósta undanfarið þar sem hinir og þessir hafa mjög sterkar skoðanir á bókun 35, og a.m.k. við í stjórnarandstöðunni höfum verið að fá slíka pósta, og auðvitað held ég að það sé líka vandamálið í almennri umræðu, og við þekkjum það þingmenn mjög vel sem við erum að lesa hér mjög flókin frumvörp, erum að kynna okkur málin vel, að það er oft yfirborðskennd umræða um mjög flókna hluti úti í samfélaginu og við vitum það líka að það getur oft farið af stað alls kyns umræða og ranghugmyndir um hvernig er í pottinn búið.
Virðulegur forseti. Við þurfum að ræða þetta mál og þetta er eitt af þeim málum þar sem Alþingi virkar ekki eins og stimpilpúði. Ég vona að við munum ræða þetta mál vel og lengi og mögulega komumst við að niðurstöðu sem verður sameiginleg þótt það sé mér til efs. En við skulum a.m.k. halda áfram að ræða málin og finna okkar besta farveg.