Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar spurningu. Þetta eru einmitt allt svona atriði sem þarf að athuga og skoða í stærra ljósi, það er algerlega á hreinu. Og eins og hv. þm. Sigríður Á. Andersen, hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson og fleiri hv. þingmenn hafa nefnt hér er að mörgu að hyggja. Það þarf að skoða og hafa allt á hreinu. En ég velti því líka fyrir mér: Erum við komin á þann stað að sumir hv. þingmenn, ég ætla ekki að fullyrða það en maður veltir því fyrir sér — eru efasemdir í rauninni um EES-samninginn sem slíkan farnar að grafa um sig hjá sumum hv. þingmönnum?