Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[23:54]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég fagna því ákaflega að hv. nefndarmenn í utanríkismálanefnd, hv. þm. Pawel Bartoszek og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir, hafi komið hér og lýst yfir vilja til að taka þátt í umræðunum. Við fögnum því að sjálfsögðu því að það hefur komið í ljós í þessum umræðum síðustu daga að þar er mörgum spurningum ósvarað sem hafa bara komið upp í umræðunni og menn hafa skipst á skoðunum. Ég vil nefna, bara svona til að upplýsa hv. þingmenn sem brosa þarna á hliðarlínunni, t.d. orðalagið í ákvæðinu, um þetta, ef Alþingi ákveður svo. Það hafa komið upp mjög áleitnar spurningar hér í umræðunni um það hvort þetta muni standast, hvort Evrópusambandið eða ESA muni samþykkja þetta orðalag, sem margir eru mjög efins um. Þessu þarf að svara og mörgum öðrum spurningum. Það þarf að svara spurningum sem hér hafa komið upp, um áhrif Fæðingarorlofssjóðsdómsins, (Forseti hringir.) sem mjög margir hafa dregið í efa. Það þarf að svara þessu þannig að við óskum auðvitað eftir ykkar þátttöku og hlökkum til næstu klukkustunda (Forseti hringir.) hérna í þessu.