Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vildi bara taka skýrt fram að gagnrýni mín hér áðan beindist ekki að hv. þm. Pawel Bartoszek. Hann má eiga það að hann hefur, ólíkt nánast öllum öðrum stjórnarliðum hér, a.m.k. leitast við að fylgjast með umræðunni. Hv. þingmaður er formaður þeirrar nefndar sem ég sit í, utanríkismálanefnd, og stendur sig bara vel þar þótt við séum ekki á sömu línu alltaf, ekki almennt. En hv. þingmaður sinnir hlutverki sínu þar af kostgæfni og ég er ekki að gagnrýna hv. þingmann. Ég er í rauninni að gagnrýna alla aðra hv. þingmenn stjórnarliðsins en sérstaklega ráðherrana, því að hér er um að ræða grundvallarmál um stjórnskipan Íslands, um það hvort íslensk lög skuli áfram ráða för, vera æðri aðsendum lögum, (Forseti hringir.) og þá hlýtur maður að ætlast til þess, frú forseti, að ráðherrar, hæstv. forsætisráðherra og aðrir, (Forseti hringir.) sjái sér fært að taka þátt í þeirri umræðu.