Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Þetta er áhugavert. Hér koma þingmenn upp úr meiri hlutanum og kvarta yfir því að þeir hafi ekki komist að á mælendaskrá af því að þingmenn Miðflokksins hafi verið svo æstir í að komast í andsvör. Þetta var nú ekki nákvæmlega svona orðað hjá viðkomandi þingmönnum en ég vil nefna það sérstaklega að Pawel Bartoszek, eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nefndi hérna áðan, hefur tekið mjög virkan þátt í umræðunum og yfirleitt alltaf verið málefnalegur. Það á nú ekki alveg við um alla aðra í meiri hlutanum. Ég vil bara nota tækifærið og hvetja meiri hlutann og forseta þingsins sem hefur dagskrárvaldið að setja þetta mál þannig á dagskrá að það sé ekki rætt hér í húmi nætur. Við getum rætt þetta mál endalaust ef menn vilja, dag og nótt, en ef menn vilja að með þessu sé fylgst í sjónvarpinu t.d. þá ættu menn kannski að íhuga (Forseti hringir.) að ræða þetta frekar á daginn.