Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Mér finnst mjög merkilegt að tala um að hér sé haldin umræða í húmi nætur. Ég veit ekki betur en að hún hafi byrjað klukkan tvö í dag, eða u.þ.b., það er nú ekki beint í húmi nætur. Hún hefur staðið núna í einhverjar 22, 23 klukkustundir eða eitthvað þess háttar, ég geri mér ekki alveg grein fyrir því en vel yfir 20 klukkustundir.
Hér hefur verið skammast yfir því að meiri hlutinn hafi ekki tekið þátt í umræðu. Persónulega hélt ég nú ræðu í þessari umræðu og var í andsvörum. En það verður því miður að segjast að það hefur ekkert mjög margt nýtt komið fram. Það hefur verið endurtekið hérna ítrekað það sama aftur og aftur og það er kannski ekkert svakalega áhugavert að taka þátt í því endalaust. En sem sagt, ókei, ef fólk vill gera það þá er það hið besta mál. Sjálfstæðismenn hafa komið upp í ræðu eftir ræðu og sagt að þeir styðji málið og það er bara frábært. Miðflokkurinn er á móti málinu og það er alveg ljóst líka. (Forseti hringir.) Svona er þetta bara. Og ég veit ekki betur en að þingmenn hafi t.d. farið í andsvör (Forseti hringir.) við alla þingmenn meira og minna sem tóku til máls úr minni hlutanum. Þannig að ég veit ekki alveg yfir hverju verið er að kvarta.(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn um að virða ræðutíma sem er ein mínúta.)