Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[00:12]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Já, það hefur ýmislegt verið rætt hérna sem er ekki bókun 35, eins og t.d. bara Flokkur fólksins sem er fólki mjög ofarlega í huga í þessari umræðu. Ég kann vel að meta umhyggju ykkar fyrir flokknum og öllu því og það er bara hið besta mál. Ég fór yfir þetta í minni ræðu og það var farið yfir þetta í andsvörum og ég tel enga ástæðu til þess að útskýra það aftur en mér finnst líka einfalt að benda á að ef fólk vill hafa einhvern skýrleika með tíma, eins og verið er að kalla eftir, og vill komast heim þá er ósköp einfalt að hleypa málinu áfram í lýðræðislega afgreiðslu þingsins. Greiðum bara atkvæði um þetta. Við vitum hvar línurnar liggja, það er bara þannig. Miðflokkurinn, sem greinilega stjórnar orðið stjórnarandstöðunni algjörlega, er einn á móti málinu eins og staðan er. Ég sé ekki betur.