Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[00:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég legg til að við vöndum okkur aðeins í umræðunni. Hér áðan kom hv. þingmaður Miðflokksins og sakaði t.d. fólk um að hafa ekki tekið neinn þátt í umræðunni en augljóst var að hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir gerði það mjög snemma í umræðunni. Auk þess hafa bæði hv. þm. Sigurjón Þórðarson og fleiri þingmenn flokksins tekið þátt í andsvörum. Það er kannski svolítill keimur af því að umræddur þingmaður hafi þá ekki verið í salnum að hlusta eins og oft vill verða. Ég hef tekið þátt í og setið stærstan hluta þessarar umræðu og það hefur oft ekki verið mjög fjölmennt hér í salnum, svo að það sé sagt. Stígum varlega til jarðar þegar við sökum aðra um að taka ekki virkan þátt í umræðunni þegar það er svo augljóslega rangt. Ég held að þingmenn Miðflokksins yrðu menn að meiri ef þeir myndu viðurkenna að hafa haft rangt fyrir sér þarna og bæðu fólk afsökunar á því að hafa ranglega sakað heilan flokk um að taka ekki þátt í umræðunni þegar allir vita að hið gagnstæða er satt.