156. löggjafarþing — 59. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[00:18]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég hlakka til að geta farið svolítið ítarlega ofan í þetta mál hérna ef það næst að lengja þennan fund eitthvað. Ég ætla að fara í þessari ræðu aðeins yfir það sem ég mun fjalla um í þeim ræðum sem ég vænti að ég nái að halda hér næstu klukkustundirnar.

Í fyrsta lagi: Um hvað snýst ágreiningur í þessu máli? Um hvað snýst ágreiningurinn um bókun 35? Af því ég veit að það eru mjög margir sem vaka yfir þessu og fylgjast með þessum umræðum þá hef ég listað upp nokkra liði. Ég ætla fyrst að nefna hæstaréttardóminn sem mönnum hefur verið svo tíðrætt um, hæstaréttardóminn sem hefur verið kenndur við fæðingarorlofsmálið. Ég ætla að fjalla aðeins um það hér seinna. Nei, niðurstaðan þar er sú — þetta fjallar ekki um þann dóm.

Í öðru lagi fjallar þetta mál um forgangsréttinn, forgangsrétt Evrópureglugerða og -tilskipana. Nei, þetta fjallar ekki um það. Það er aukaafurð og ég mun koma að því í ræðu seinna í kvöld.

Í þriðja lagi hvort það sé nauðsynlegt að innleiða þetta ákvæði sem er að finna í þessu frumvarpi ríkisstjórnarinnar og hæstv. utanríkisráðherra. Ég ætla að taka svolítinn tíma í að ræða hvort það sé nauðsynlegt að innleiða ákvæðið og undir þeim lið, sem er 3. liður, hef ég sett undirlið sem er merktur 3a. Undir þeim lið ætla ég að fjalla um hvort þetta ákvæði, ef það verður að lögum, sé í sjálfu sér nægjanlegt. Ég hef nefnilega grunsemdir um það, og ég ætla að rökstyðja það mjög ítarlega hér síðar, að það sé bara alls ekki nægjanlegt og gæti hugsanlega valdið því að ESA muni halda áfram að gera athugasemdir við innleiðingu þessa ákvæðis, þannig að við erum ekkert laus úr snörunni jafnvel þótt við samþykkjum þetta frumvarp. Þessa ræðu mun ég halda síðar hér á eftir og þetta er undir liðnum 3a.

Í fjórða lagi, sem er aðalatriði að mínu mati, er það hvort þetta ákvæði brjóti í bága við stjórnarskrána. Ég hef svarað því hér áður í fyrri ræðum að ég tel svo vera. Ég mun rökstyðja það undir liðnum 4a sem er efni stjórnarskrárákvæðisins. Þar mun ég fara í efni 2. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir að Alþingi fari með löggjafarvaldið ásamt forseta landsins. Undir liðnum 4b mun ég fara yfir samspil laga og stjórnarskrár mjög ítarlega, herra forseti. Undir liðnum 4c mun ég fara yfir tilgang, tilefni og sögu stjórnarskrárinnar.

Ég gleymdi að nefna áðan undir lið 2, þar sem ég ætla að fjalla um forgangsréttinn, að þar mun ég einnig fjalla um, undir liðnum 2a, túlkunarregluna sem við innleiddum 1993. Ég mun fara ítarlega yfir hana í sérstakri ræðu síðar í kvöld. Ég mun einnig fara lítillega og alls ekki mikið yfir innleiðingarferlið, ekki þó eins ítarlega og ég hef gert nokkrum sinnum áður. Ég mun einungis fjalla um hvaða áhrif aðferð við innleiðingu hafi — hvaða áhrif þetta ákvæði sem stjórnvöld hyggjast setja mun hafa, þ.e. hvernig viðkomandi tilskipanir eða reglugerðir hafa verið innleiddar, hvort það geti haft áhrif í þessu sambandi, herra forseti.

Ég náði ekki að fara yfir efnisyfirlitið en ég mun gera það í næstu ræðu. Bið herra forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.