Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[00:40]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Ég sá líka umrædda mynd af hv. þm. Pawel Bartoszek þegar þetta aðaláhersluatriði hæstv. ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var afgreitt út úr nefnd. Það var þar af leiðandi augljóslega fyrsta málið og þá var nú ekki óeðlilegt eða óvarlegt af þingmanni að reikna með því að málið væri að koma hér inn í þingsal bara hvað úr hverju. En sú var aldeilis ekki raunin. Og svo því sé haldið til haga hefur það ekkert með stjórnarandstöðuna að gera eða afstöðu Miðflokksins til málsins að gera. Það er alfarið ákvörðun meiri hlutans. Sjálfsagt eru einhverjar ástæður fyrir því að meiri hlutinn ákveður að draga það að setja þetta mál á dagskrá alveg fram undir þinglok. Það skyldi þó ekki vera að það hentaði bara hæstv. ríkisstjórn og meiri hlutanum ágætlega að þeir sem hér eru og hafa uppi efasemdir eða eru á móti málinu ræði það ítarlega því að það er kannski bara sú staða uppi í meiri hlutanum að það að forgangsraða þar innan húss hvaða mál á að setja í forgang á dagskrá fyrir þinglok sé bara samkomulag sem er ekkert að nást. Þess vegna gæti þetta hentað prýðilega sem dagskrármál, þótt það sé leiðinlegt að ræða þetta á nóttunni vegna þess að það er nú, held ég, almennt hægt að reikna með því að það geri fólki örðugra fyrir að fylgjast með umræðunni. Því er hætt við að einhverjar af þeim ræðum sem hér verða fluttar í nótt verði að flytja í nánast óbreyttri mynd aftur, telji þeir sem eru að flytja ræðurnar þær þess eðlis að efni þeirra verði að komast á framfæri.

Mig langar aðeins að halda áfram á svipuðum slóðum og ég hef verið, að ræða fyrri ummæli og afstöðu Flokks fólksins og þá forgangsröðun sem þar er augljós og fá að vitna, með leyfi forseta, beint í ræðu sem Eyjólfur Ármannsson, hæstv. ráðherra, þá hv. þingmaður, flutti 12. mars 2024, en þar segir, með leyfi forseta:

„Ég get ekki annað en minnst á bókun 35. Um hvað fjallar bókun 35? Hún fjallar um það að lög sem eiga uppruna sinn í Brussel gangi framar íslenskum lögum þegar kemur að lagatúlkun; það er forgangsreglan sem er í bókun 35. Ég vil meina að þetta hafi verið afgreitt fyrir 30 árum síðan með 3. gr. EES-laganna. Hér erum við hins vegar að fjalla um það þegar íslensk lög ganga lengra en tilskipanirnar. Af hverju setjum við þá ekki bara reglur um það, löggjöf, að þegar íslensk lög ganga lengra en tilskipanir ESB þá hafi þau lög ekki gildi, þau ákvæði?“ — Ég skil reyndar ekki, herra forseti, alveg þessa setningu en þetta er bein tilvitnun. — „Öfugt er farið með bókun 35. Það er hin hliðin á peningnum, þegar við göngum skemmra og einstaklingar missa rétt. Þeir geta þá farið í skaðabótamál, eins og kom fram í nýlegum hæstaréttardómi, en það sýnir að við eigum ekki að löggilda bókun 35.“

Mikið skýrara verður þetta nú ekki, held ég. Mikið skýrari getur afstaða hv. þingmanna og eftir föngum hæstv. ráðherra ekki verið. Hv. þm. Eyjólfur Ármannsson hélt svo áfram — en ég sé að tími minn er að renna út. Hv. þingmaður hélt lengi áfram að rökstyðja og útskýra hvers vegna þessi bókun mætti alls ekki fara inn í íslenskan rétt í þessari mynd, því að vissulega er hún til staðar í 3. gr. sem túlkunarregla og þar hafa ekki verið, held ég, miklir ágallar á framkvæmdinni til fjölda ára.

Ég sé, herra forseti, að ég verð að biðja um að vera settur aftur á mælendaskrá.