Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[00:56]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég verð að biðja herra forseta afsökunar á því að ég næ ekki að halda áfram þar sem frá var horfið að fara í þessa kafla eins og ég lagði upp í minni fyrri ræðu vegna þess að ég hef fengið fjölda ábendinga utan úr bæ um að þessu sé kannski ekki alveg rétt raðað hjá mér. Einhver benti mér á að það vantaði inngang og ég er að vinna í því núna að bæta úr því. Þetta tekur smá tíma hjá mér þannig að ég verð að biðja áheyrendur forláts á því að ég mun ekki byrja alveg á þessu sem ég lofaði í minni síðustu ræðu en ég mun gera það fljótlega eftir því sem líður á.

Ég ætlaði hins vegar aðeins að koma að öðru fyrst ég hef tækifæri til. Ég hjó eftir því hér í máli eins hv. þingmanns í dag, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fullyrti að almenningur hefði lítinn áhuga á þessu máli. Ég hef bara ekki upplifað það sama. Ég er búinn að fá fjölda skeyta, bara út af þessum köflum sem ég var að telja upp hérna áðan. Menn hafa verið að finna að því og koma með uppástungur um hvernig hægt væri að raða þessu aðeins öðruvísi og ég mun að sjálfsögðu taka fullt tillit til þess. Ekki bara það að almenningur hafi lítinn áhuga á þessu máli heldur hef ég líka heyrt fólk fullyrða að það hafi ekki bara lítinn áhuga heldur enn minni skilning. Auðvitað er það okkar skylda að reyna að upplýsa fólk og tala bara mannamál og tala þannig að fólk átti sig á því hvað við erum að ræða hér.

Ég ætla að leitast við, herra forseti, að gera það í mínum ræðum hér og halda hér áfram. Ég var búinn að benda á nokkrar lausnir, hvað við gætum gert, Íslendingar, standandi frammi fyrir þessu vandamáli, að ESA sé að finna að því að við höfum ekki innleitt þessa bókun réttilega og hvað sé til bragðs að taka og — ég ætla ekki að fara að lesa hér upp úr bréfum, alla vega ekki að svo stöddu — hvernig við höfum verið að reyna að verjast þessu í gegnum árin og nú er sem sagt komið að því að vera stödd frammi fyrir þessu frumvarpi. Hvað getum við gert annað? Ég hef bent á það og talað fyrir því hér að fyrsta lausnin sé einfaldlega sú að við höldum áfram að innleiða, að við höldum bara áfram á óbreyttri braut, þ.e. að við reynum bara að vanda okkur betur, innleiða þessar Evrópureglugerðir vel, ekki þó ofgera því eins og við höfum stundum gert. Við höfum stundum gengið lengra en Evrópureglugerðirnar hafa krafist. Þannig að ég sting upp á því, herra forseti, að við látum eins og ekkert sé, það er oft best, og höldum áfram brautina og reynum að bæta okkur í því að innleiða þetta réttilega og gæta þess að íbúar og almenningur hér á landi fái þær réttarbætur sem við teljum vera þeim fyrir bestu, að sjálfsögðu.

Þetta höfum við verið að gera, herra forseti, oft og tíðum með ágætum árangri. Það hefur komið fyrir að innleiðingin hafi ekki verið nægjanleg að mati eftirlitsstofnunarinnar og þá eru viðbrögðin oftast þau, forseti, að því er kippt í liðinn. Varnagli þessa er sá að dómstólum er uppálagt að túlka og skýra lög og reglur eins og unnt er til samræmis við reglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem hér hafa verið innleiddar. Það sem hefur þurft að lagfæra eru þau tilvik sem þarna standa út af og stundum hafa dómstólar metið það svo að reglur EES hafi ekki verið innleiddar á þann hátt sem efni stóðu til, hvort sem það var óviljandi eða ekki. Þannig var með hinn títtnefnda fæðingarorlofsdóm þar sem löggjafinn hér hafði ekki innleitt ákveðin ákvæði Evrópureglna. Það var einfaldlega niðurstaða dómsins, frú forseti, að við hefðum ekki innleitt þessar reglur eins og átti að gera, sleppt því eða ekki innleitt þær að fullu. Það voru engar nýjar fréttir, frú forseti. Þetta vissu menn og hafa alltaf vitað að þetta kemur fyrir. Þá er mín uppástunga, frú forseti, að við reynum að bæta okkur í þessu efni. Við getum ekki látið eins og dómurinn hafi verið að finna þetta upp þarna. Hann var einfaldlega að lýsa réttarstöðunni eins og hún er og hefur verið. Sá dómur er ekki að segja neitt meira en það. Vandamálið með bókun 35 er þó miklu eldra en sá dómur sem gekk hér fyrir ári síðan, svo að hugleiðingar í þessum dómi fólu ekki í sér neinar nýjar fréttir. Ég óska eftir því, frú forseti, að verða settur aftur á mælendaskrá.