Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Þetta er áhugaverð umræða. Nú er kominn 13. júní og við komin talsvert langt inn í nóttina. Mig langar að taka undir orð hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur varðandi viðsnúning Flokks fólksins sem var á móti þessu máli áður en hann tók sæti í ríkisstjórn. Það er áhugavert að fylgjast með að að þetta sé nú orðið eitt hið mesta áherslumál þess flokks sem var nú allt annað en hlynntur þessu áður en hann tók sæti í ríkisstjórn. Þetta er líka áhugaverð forgangsröðun fyrir kjósendur Flokks fólksins til að fylgjast með, að flokkurinn skuli snúast 180° í þessu máli og, eins og þetta kemur mér fyrir sjónir, allt fyrir setu í ríkisstjórn.
En mig langar að halda áfram þar sem frá var horfið áðan í fimmtu ræðu minni. Mig langar að vitna til orða hæstv. núverandi ráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, í umræðu um framkvæmd EES-samningsins fyrir rúmu ári síðan frá 7. mars 2024. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„„EFTA-ríkin féllust ekki á þessa kröfu EB þar sem ljóst var að í þeim EFTA-ríkjum þar sem þjóðarétturinn hefur ekki þegar forgang fyrir landslögum, mundi forgangsregla EB-réttarins kalla á framsal löggjafarvalds. Í Austurríki og Sviss hefur þjóðaréttur forgang, þótt skiptar skoðanir séu um hve langt þeirra forgangsreglur ná.“
Svo kemur, með leyfi forseta:
„Niðurstaða samninganna var sú að í bókun 35 við EES-samninginn staðfesta samningsaðilar að löggjafarvald sé ekki framselt.“ — Það kemur alveg skýrt hérna fram að markmiðum um samræmda túlkun EES-reglna verði að ná með reglum í réttarkerfi hvers ríkis. Við höfum reynt að ná þessu markmiði með samræmisskýringunni í 3. gr. laga um EES.“
Og einnig, með leyfi forseta:
„Samningsaðilar skuldbinda sig því til, ef þörf krefur, að lögfesta túlkunarreglur þess efnis, að ef upp kemur misræmi milli EES-reglna sem hafa verið lögfestar og annarra ákvæða í lögum, þá gildi reglur EES í því tilviki. Sjá nánar 3. gr. frumvarps til laga um Evrópska efnahagssvæðið og athugasemdir við þá grein.“ Það er vísað í 3. gr. hvað þetta varðar, í samræmisskýringuna. Það að ætla núna að fara að lögfesta reglu um það að reglur EB-réttarins séu rétthærri en íslensk lög frá Alþingi Íslendinga, stangist þau á, sem er mjög ólíklegt af því að við reynum alltaf að hafa alla lagasetningu okkar í samræmi við samninginn, að þá verði almenn lög með uppruna í Brussel, uppruna í ESB-löggjöf, rétthærri en önnur almenn lög frá Alþingi Íslendinga. Það stenst ekki stjórnarskrá Íslands. Það er takmörkun á löggjafarvaldi, eins og kom fram áðan hjá mér, vegna þess að skýringarreglurnar eru þannig.““
Ég segi aftur: Svo mörg voru þau orð. En nú er Flokkur fólksins kominn í ríkisstjórn og þá er allt breytt. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Í hæstaréttardómi sem féll núna 28. febrúar fer Hæstiréttur ágætlega yfir þetta. Hann talar um forgangsreglur í lögfræði sem leysa úr árekstri til að koma í veg fyrir — þetta er í 40. mgr. í dómi 24/2003. Hann talar um að stjórnarskrá sé æðri öðrum lögum, þ.e. að æðri reglur gangi framar lægra settum“ — hér kemur sletta, afsakið, forseti — lex posterior reglan, fræg regla í lögfræði. Stjórnarskrá er rétthærri en almenn lög. Það er ekki munur á almennum lögum gagnvart uppruna þeirra en hins vegar ganga sérlög framar almennum og síðari lög ganga framar eldri lögum. Þannig er það.“
— Segir hv. þingmaður þess tíma en núverandi ráðherra sem er kominn í ríkisstjórn og hefur snúist um 180° í afstöðu sinni til innleiðingu á bókun 35.
Frú forseti. Ég sé að klukkan er farin að blikka. Ég á eftir að segja ýmislegt fleira um þetta mál og mig langar að biðja forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.