Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[01:16]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tek undir með þér, þetta er góð umræða. Hún fer ágætlega af stað en hún er rétt að byrja. Ég segi fyrir sjálfan mig að ég hef rétt náð að kynna áform mín um hvað skuli ræða. Stöðugt vilja einhverjir aðrir þingmenn tala hér og það er alltaf bið eftir því að fá að tala aftur og ég þarf iðulega að minna á það sem ég ætlaði að fara að ræða. Ef ætlunin er sú að tala að næturlagi — sem er allt í lagi, nú er sól að hníga til viðar eða að rísa, ekki gott að segja á Íslandi á þessum tíma árs. Ég hef ekkert á móti því að tala í alla nótt en ég vil þó benda hæstv. forseta á þá óhjákvæmilegu afleiðingu af því að ég mun þá þurfa að ítreka það sem ég segi að næturlagi daginn eftir því við hljótum að vilja að almenningur á Íslandi hafi tækifæri til þess að fylgjast með umræðunni og um leið hljótum við að vilja að almenningur á Íslandi hafi tækifæri til að sofa. Þess vegna vek ég athygli á þessu við hæstv. forseta.