Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég ætlaði aðeins að koma inn í þessa fundarstjórn. Ég varð auðvitað mjög hissa að heyra það hér hjá hv. ræðumönnum sem hófu þessa umræðu að maður þyrfti að endurtaka ræðurnar. Það veldur mér ákveðnu hugarangri. Ég er t.d. að hugsa um að endurtaka ekki mína fyrstu ræðu hérna áðan, þar sem ég var með þessa kaflaskiptingu, vegna þess að ég er búinn að ákveða að ég muni breyta þessari kaflaskiptingu þannig að ég mun ekki endurtaka þá ræðu, [Hlátur í þingsal.] þið þurfið ekki að óttast það. En aðrar góðar ræður mun ég að sjálfsögðu endurtaka. Ég held nefnilega að þetta eldra fólk sem er að horfa á Alþingisrásina, sem ég held að sé mikið sérstaklega á þessum tíma — og ég mun að sjálfsögðu bara endurtaka langflestar mínar ræður ekki allar, þegar kemur dagur aftur, hvenær sem það verður, á laugardaginn eða einhvern tímann seinna — sé ekki að horfa á þessar upptökur. Þau horfa á línulega dagskrá, ég held að það sé nú þannig. Ég vil mótmæla því (Forseti hringir.) sem hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir sagði áðan. Ég held að þau séu ekki í þessum upptökum.
(Forseti (ÞSv): Forseti getur bent hv. þingmönnum á að það eru vissulega fullt af nátthröfnum á Íslandi sem eru örugglega að fylgjast með þessum umræðum núna.)
[Hlátur í þingsal.]