Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég get upplýst um það að ég fékk skilaboð áðan um að þetta væri hið nýja „Love Island“ fyrir ákveðið heimili hér vestur í bæ. Þannig að það eru væntingar um að þetta haldi áfram, a.m.k. um sinn. Hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir hafði efasemdir um að margir væru að fylgjast með línulegri dagskrá. Síðast þegar ég heyrði einhverjar fjölmiðlarannsóknartölur í þessum efnum var upplýst um að það væri rétt um 6.000 manns, eða um 6.000 sjónvörp, ég man nú ekki hvor talan það var, sem að jafnaði fylgjast með Alþingisrásinni, sem er bara býsna gott. Það eru margir áhugasamir.
Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson lagði til að málið gengi sem fyrst til nefndar og fagnaði því hversu efnisleg og góð umræðan hefði verið, sem ég er sammála. Hún hefur verið prýðisgóð hingað til og heldur áfram í þeim takti. En málið gengur til hv. utanríkismálanefndar þegar efnislegri umræðu er lokið hér við 2. umræðu. Það er töluvert mikið eftir af henni og ég bara fagna því að þingflokksformaður Samfylkingarinnar fagni því að málið gangi til nefndar milli 2. og 3. umræðu (Forseti hringir.) en auðvitað gengur málið ekki þangað fyrr en efnislegri umræðu er lokið, a.m.k.