Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Mig langar hér, í því sem mér telst til að sé sjötta ræða mín hér við þessa umræðu um bókun 35, að tæpa stuttlega á því sem hefur verið rætt hér töluvert og kannski meira við fyrri framlagningar þessa máls heldur en núna en þó töluvert núna eins og svo sem við var að búast. Það eru þau réttindi sem haldið er fram að einstaklingar verði af vegna þess að bókun 35 var innleidd með þeim hætti sem gert var í upphafi samanborið við það sem nú er lagt til. Það er nauðsynlegt að halda því til haga að þessi umræða dregur eingöngu fram — ég bara man ekki eftir því að stuðningsmenn málsins hafi nefnt í einu orði þær skyldur sem þetta kann að leggja á íslenska borgara, íslensk fyrirtæki og íslenska einstaklinga umfram það sem gildandi réttur leiðir fram eins og hann stendur í dag. Við verðum því að ræða þetta í því samhengi að það séu réttindi og skyldur sem þessi breyting getur kallað fram, ekki bara réttindi eins og áherslan hefur verið. Eitt eru lög sem verða sett frá þeim tímapunkti sem málið verður klárað eins og það liggur hér fyrir, verði það niðurstaðan, en það sem ég hef kannski enn þá meiri áhyggjur af er allur hinn gildandi réttur sem mun þá lúta þeim sjónarmiðum að stangist regluverk á við það sem hefur komið frá Brussel þá gangi Brussel-regluverkið hraðar hafi það verið innleitt með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir hér á Íslandi. Því verður eiginlega að halda til haga í þessari umræðu að umfjöllun um innleiðingarmál er með allt öðrum hætti hér á þinginu heldur en um lög sem má segja að eigi uppruna sinn í hugmyndum hér heima, annaðhvort í þinginu, ráðuneytum eða með öðrum hætti. Það er allt annað verklag. Við vitum það öll.
Af því að nú situr hv. formaður utanríkismálanefndar hér í salnum eins og hann gerir iðulega, sem er gott, þá er þetta atriði sem mig langar til að biðja um að reynt verði að ná utan um þegar málið gengur til nefndar milli annarrar og 3. umræðu. Það er kannski sérstaklega af því að það hefur verið svo mikill vilji og löngun til að tala um réttindi sem EES-samningurinn gæti hafa leitt fram sem ekki hafa orðið vegna gildandi réttar. En mig langar til að óska eftir því við háttvirtan formann að hann taki þann bolta að ná utan um skyldur sem þessi breytta nálgun kallar fram, bæði hvað varðar einstaklinga og fyrirtæki landsins, því að það er auðvitað eitthvað sem þarf að skoðast heildstætt í þessari mynd, upp á heildaráhrifin af þessari breytingu, með innleiðingu þessarar fortakslausu forgangsreglu, til fortíðar og framtíðar, eins og þar stendur. Ég biðla því bara til hv. formanns að taka þann bolta. Nægur er tíminn. Ég held að þetta muni bæta málið og vafalaust vekja upp einhverjar spurningar varðandi það hvort hér sé raunverulega gengið til góðs.
Það sést svo vel í máli sem er hér fyrir þinginu núna, þar sem er einmitt verið að bregðast við þeim dómi sem oftast er nefndur og snýr að fæðingarorlofsmálum, að það er hér þingmál til vinnslu í þinginu sem bregst við því. Það er einmitt það sem við erum í fullum færum til að gera hvenær sem við metum það sem svo að við hefðum viljað hafa rétt einstaklinga með þeim hætti sem hér um ræðir. Þá breytum við regluverkinu þar að lútandi. Þegar þingið er sammála um slíka hluti getur slíkt gerst mjög hratt. Við þekkjum það. Löggjöf sem sátt er um, eða breytingar á regluverki, getur gengið, ja, það er næstum því hægt að segja á ógnarhraða í gegnum þingið. Það er þó ef sýn aðila er sú sama. Ég er ekki að hvetja til hroðvirknislegra vinnubragða en sum mál eru einföld og hægt að kippa í liðinn því sem aflaga hefur farið. Til að ná þessu fram þurfum við þó ekki að setja þessa fortakslausu forgangsreglu yfir allan gildandi rétt (Forseti hringir.) og sérstaklega ekki ef menn ætla ekki að glöggva sig á heildaráhrifunum af þeirri aðgerð.
Frú forseti. Ég vil biðja þig um að setja mig aftur á mælendaskrá.