Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir skoraði á okkur áðan að flýta fyrir umræðunni, að vera einbeittari á málið og tala meira inn í málið sjálft. Það er hvatning sem ég tók til mín og ætlaði ég nú að fara í það en þá gerðist það skemmtilega í kjölfarið að þá kom hv. þm. María Rut Kristinsdóttir og fór að tala um sjónvarpsþætti. Ég veit því ekki alveg hvort það einskorðast við okkur í minni hlutanum að vera ekki alveg í hjólförunum. Látum það liggja milli hluta. Þetta var í það minnsta mjög skemmtileg innkoma hjá hv. þingmanni þótt ég hafi ekki alveg áttað mig á henni. Ég fer bara og gúgla það á eftir. Ég náði íslenska nafninu á þættinum sem hv. þingmaður vitnaði til og hyggst kynna mér þessa þætti sem voru nefndir hér.
Mig langar, frú forseti, að fara aðeins inn í, og það mun væntanlega taka dálítinn tíma því að þetta er gríðarlega efnismikið, fara aðeins inn í fyrri varnir okkar Íslendinga og þau bréf sem skrifuð voru til að verja málstað okkar gagnvart því sem við getum kallað Brussel-veldið. Ég held að það sé engin leið til að gera það nema hreinlega lesa bara upp úr þessum bréfum. Þetta er reyndar ekki löggild þýðing en tiltölulega góð, ef ekki bara hreinlega mjög góð, og ég held að það sé engin leið til að gera þetta öðruvísi en að lesa þessi bréf til að þetta efni komist til skila því að þetta er málsvörn Íslands á fyrri stigum. Hér eru þau rök sem fyrirrennarar hæstv. ríkisstjórnar sem nú situr höfðu uppi. Með leyfi forseta:
„Vísað er til rökstudds álits ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, dagsetts 30. september 2020, varðandi meinta vanefnd Íslands á skyldum sínum samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn og 3. gr. EES-samningsins, mál nr. 71/655, sem og fyrri bréfaskipta milli stofnunarinnar og ríkisstjórnar Íslands um málið.
Í fyrsta lagi ítrekar ríkisstjórnin að samræmd beiting og túlkun EES-reglna sé lykilatriði til að tryggja réttindi einstaklinga og atvinnurekenda sem EES-samningurinn leiðir af sér. Ísland hefur ætíð staðið við allar skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningnum. Bent skal á að vernd borgara og atvinnurekenda hefur verið tryggð af öllum greinum íslenska ríkisins allan gildistíma EES-samningsins, m.a. með innleiðingu EES-skuldbindinga eins og þeirra sem koma fram í 3. gr. laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, þ.e. EES-laganna, sem innleiðir bókun 35 við EES.
Í öðru lagi áréttar ríkisstjórnin mikilvægi meðalhófs og hlutlægni sem og að horft sé til víðara samhengis við mat á því hvort Ísland hafi staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningnum. Með hliðsjón af eðli bókunar 35 við EES-samninginn er nauðsynlegt að taka til skoðunar víðara samhengi en einungis 3. gr. EES-laganna þegar fjallað er um þetta mál. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef spurning um einstaklingsbundna réttarvernd er í forgrunni. Því verður greiningin að taka til alls kerfisins sem tryggir réttindi einstaklinga og atvinnurekenda eins og það virkar í framkvæmd.
Í þriðja lagi skal tekið fram að í rúma tvo áratugi hafði ESA engar athugasemdir við innleiðingu bókunar 35 í íslensk lög eða það lagaumhverfi sem gilt hefur á Íslandi frá því að EES-lögin voru samþykkt á Alþingi 13. janúar 1993 og tóku gildi 1. janúar 1994. Skv. 2. mgr. 1. gr. EES-laganna voru meginákvæði EES-samningsins lögfest að fullu í íslenskum rétti og bókun 35 innleidd með 3. gr. laganna þann 11. apríl 2012. Nærri 20 árum eftir samþykkt EES-laganna sendi ESA beiðni um upplýsingar varðandi innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn í íslenskan rétt.“
Frú forseti. Ég vona að þetta hafi verið nægjanlega tengt málinu og óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.