Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[01:45]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér hefur margoft verið nefndur dómur Hæstaréttar frá 28. febrúar 2024, hæstaréttardómur nr. 24 frá árinu 2023, sem ástæða þess að nauðsynlegt sé að samþykkja þetta frumvarp sem hér liggur frammi. Ég vek athygli á því að þessi umræddi dómur, Fæðingarorlofssjóðsdómurinn, féll í febrúar 2024 eins og fram hefur komið en þetta frumvarp var lagt fram hér á þingi miklu fyrr þannig að þegar af þeirri ástæðu getur þessi dómur ekki verið ástæða eða tilefni þessa lagafrumvarps, enda liggur fyrir umræða um innleiðingu á bókun 35. Hún á sér miklu lengri sögu, ekki mjög langa sögu en hún á sér lengri sögu en þessi dómur þannig að það er ónákvæmt í besta falli ef ekki hreinlega rangt að halda því fram, eins og gert hefur verið, sem er væntanlega gert svolítið til að leggja meiri áherslu á nauðsyn þess að samþykkja þetta frumvarp. Þá þykir kannski fínna að geta vísað í einhvern hæstaréttardóm fremur en einhvern ágreining við einhverja embættismenn úti í Brussel. Menn meta það kannski hér að það sé vænlegra til árangurs að geta veifað hæstaréttardómi fremur en einhverjum bréfum frá Eftirlitsstofnun EFTA um þetta mál. Þetta mál á einmitt einvörðungu rætur að rekja til aðfinnslna embættismanna, íslenskra held ég nú einkum og sér í lagi, sem starfa við Eftirlitsstofnun EFTA, sem tóku upp á því fyrir nokkrum árum að fara að senda hingað bréf til Íslands í að mínu mati pólitísku ati til þess að ýfa aðeins fjaðrirnar og minna svolítið á Evrópusambandið og alla þá samvinnu sem þetta fólk hefur viljað auka fremur en draga úr eða halda í horfinu. Eftirlitsstofnun EFTA sendi sem sagt Íslandi og íslenskum stjórnvöldum bréf um að það teldi bókun 35 ekki innleidda með réttum hætti í því ljósi að Ísland hefur ekki kveðið á um forgangsrétt EES-reglna umfram önnur lög hér á landi. Þetta hefði ekki átt að koma nokkrum manni á óvart vegna þess að þetta hafa menn vitað í 30 ár eins og fram hefur komið.

Síðast var Eftirlitsstofnun EFTA, sem oft er kölluð ESA til styttingar, svarað af hálfu íslenskra stjórnvalda með bréfi 30. september 2020. Í því bréfi er vísað til fyrri bréfaskipta og mér hefur þótt það með miklum ólíkindum hversu djúpt hefur verið á því að gera þessi bréfasamskipti opinber, einkum og sér í lagi þetta síðasta bréf sem íslensk stjórnvöld sendu árið 2020. Mér skilst að það bréf hafi verið gert opinbert gagnvart þingmönnum í hv. utanríkismálanefnd eftir nánast þrábeiðni þeirra um að fá aðgang að þessu bréfi og það hafi bara verið nýlega gert. Þannig var t.d. þetta bréf ekki opinbert á síðasta kjörtímabili, sem mér finnst alveg með miklum ólíkindum vegna þess að bréfið er bara afskaplega gott og þá góður vitnisburður um staðfestu íslenskra embættismanna í utanríkisráðuneytinu og hagsmunagæslu þeirra fyrir hönd Íslands gagnvart erlendu valdi, embættismönnum. Mér hefur þótt það með miklum ólíkindum að þetta bréf hafi ekki verið gert fyrr opinbert. Ég finn reyndar bréfið ekki opinbert á einhverjum opinberum vefsíðum en ég kalla eftir því að þetta verði gert opinbert og ég lít svo á að þetta bréf sé opinbert. En fyrri bréfasamskipti ættu líka að sjálfsögðu að verða opinber og ég ætla að fjalla nánar um þetta í næstu ræðum mínum.

Virðulegur forseti. Ég sé að tíminn er að renna út og óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.