Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Það er gaman að taka þátt í þessari inspírerandi umræðu — afsakaðu slettuna, forseti. Hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kom inn á marga spennandi punkta en mig langar að halda áfram í mínu innleggi hérna. Ég held þetta sé sjöunda ræðan. Mig langar að halda áfram að vitna til orða núverandi hæstv. ráðherra, Eyjólfs Ármannssonar. Hann hafði sterkar skoðanir á innleiðingu á bókun 35, í það minnsta áður en hann tók við ráðherraembætti í ríkisstjórn Flokks fólksins, Viðreisnar og Samfylkingar. Með leyfi forseta langar mig að halda áfram að vitna til orða hans:
„Í þessum dómi sem hér er búið að vera að vísa til og dásama, og ég get ekki séð annað en að eigi við um sjálfan mig sem var í fæðingarorlofi í fyrra, er alveg klárt mál að að sjálfsögðu er verið að tala um túlkun á EES-samningnum en það breytir því ekki að hægt er að fara fram á skaðabótamál ef það er verið að brjóta á einstaklingi þegar íslenska ríkið fer ekki eftir EES-reglum. Og það er ekkert nýtt hjá EFTA-ríkjunum. Ég get tekið dæmi hérna, svokallaðan NAV-skandal í Noregi. Þar voru 80 einstaklingar dæmdir óréttilega fyrir tryggingasvindl á almannatryggingum og 2.400 tryggingaþegar voru krafðir um endurgreiðslu. Það var vegna kröfuhörku norska ríkisins um framfylgd sem þeir héldu að væri í norskum lögum og samkvæmt EES-reglum. En þeir túlkuðu þetta ekki rétt.“
Þess ber að geta, hæstv. forseti, að ég var búsett í Noregi á þessum tíma þannig að ég fylgdist sjálf vel með þessu máli. Með leyfi forseta held ég áfram:
„Þeir brutu á fólkinu þannig. Það voru einstaklingar settir í fangelsi í Noregi, 80 einstaklingar voru settir í fangelsi vegna þess að þeir voru sakaðir um tryggingasvik af því að þeir túlkuðu EES-reglurnar ekki rétt.“
Það var mjög sorglegt að fylgjast með þessu verandi búsett í Noregi á þessum tíma. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Ísland á ekkert sambærilegt mál og NAV-skandalinn í Noregi, ekki eitt einasta mál sem kemst nálægt því. Svo erum við að halda því fram að okkur hafi gengið illa að framfylgja EES-reglum, sem er bara rangt. Við höfum gert það vel og það er mekanismi“ — ég bið forseta að afsaka slettuna, ég er að hafa eftir hæstv. núverandi ráðherra — „til að taka á því ef það koma upp tilvik sem leiða til skaðabóta.“
Það er nú svo spennandi að að lesa upp úr ræðum hæstv. núverandi innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, að mig langar að halda áfram. Þetta er úr ræðu sama dag undir umræðu um framkvæmd EES-samningsins. Ég vitna hér til orða Eyjólfs Ármannssonar, núverandi innviðaráðherra, með leyfi forseta, og hann segir:
„Ég þakka umræðuna sem hefur átt sér stað hér í dag og ég tel mjög mikilvæga. Mig langar að drepa á nokkur atriði hérna í seinni ræðu. Í fyrsta lagi hefur verið minnst hér á Noreg og að það sé komin upp pólitísk umræða í Noregi. Ég hef ekki heyrt þá umræðu á opinberum vettvangi a.m.k., en minni á að Norðmenn hafa tvisvar sinnum farið í þjóðaratkvæðagreiðslu; árið 1972 þar sem þeir höfnuðu aðild að Evrópusambandinu og svo 20 árum seinna, árið 1993, þar sem þeir höfnuðu aftur í þjóðaratkvæðagreiðslu aðild að ESB. Ég hef ekki heyrt að það sé í kortunum að fara í þriðju þjóðaratkvæðagreiðsluna um það mál sem hefur klofið norskt samfélag með reglulegu millibili, a.m.k. tvisvar. Þetta er líka eitt ríkasta samfélag heims og það er engin ástæða fyrir því að þeir fari inn í ESB. Hagsmunum þeirra er vel borgið sem olíu- og gasframleiðandi fyrir Evrópu og ég get ekki séð nein efnahagsleg rök fyrir því. En ég tala ekki fyrir hönd Noregs.“
Núna langar mig, hæstv. forseti, að vitna til orða núverandi forsætisráðherra Noregs sem höfð voru eftir í tengslum við landsfund Verkamannaflokksins í Noregi fyrir skömmu. Jonas Gahr Støre sagði þá, og þetta er systurflokkur Samfylkingarinnar hér á Íslandi, (Forseti hringir.) að hann teldi að það ætti ekki að fara í alvöruumræðu um mögulega aðild Noregs að Evrópusambandinu. Þetta væri ekki réttur tími vegna þess að Noregur þyrfti núna að hlúa að hagsmunum sínum heima fyrir, (Forseti hringir.) hann vildi ekki tvístra norsku samfélagi í ESB-aðildaraðlögunarviðræðum.
Frú forseti. Má ég biðja þig að setja mig aftur á mælendaskrá.