Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég hef hér verið að rekja mig í gegnum rök, ef rök skyldi kalla, stuðningsmanna þessa máls og ætla að reyna að gera nokkra gangskör að því svo ég komist í meginefni máls míns en í síðustu ræðu fjallaði ég um dóminn og þarf því ekki að verja meiri tíma í það í bili þó að það hafi verið mjög takmörkuð umfjöllun og ég muni þurfa að koma að því aftur síðar.
En ég ætla nú að snúa mér að atriði númer tvö, atriðinu sem ég kalla brelluna, þegar einhverjir fundu — hafandi áttað sig á því að þetta mál væri nú nokkuð erfitt viðureignar, orkaði tvímælis — það snilldarráð, a.m.k. að eigin mati, að setja inn í frumvarpið ákvæði þess efnis að Alþingi gæti eftir sem áður ákveðið að fara á svig við lögin sem verið er að setja. Hér er ég ekki að ýkja með orðalagi mínu því þessu er beinlínis lýst með þeim hætti í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar.
Nú verða nokkur tíðindi, frú forseti, því að ég lenti í því í síðustu viku að aldrast. Ég lenti í öldrun og þurfti að sætta mig við það að ég þyrfti að fara að ganga með gleraugu. Fram að því hafði ég að miklu leyti auðvitað þurft að reiða mig á munnmælasögur en komst að þeirri niðurstöðu, og það var ekki hvað síst þessu áliti að þakka, að ég þyrfti að fara að notast við gleraugu. Það hefur gert mér betur kleift að skilja málflutning meiri hlutans í þessu máli, ekki að hafa samúð með þeim málflutningi en að átta mig á því hvað menn eru að fara. Þannig get ég núna lesið skýrt nokkurt grundvallaratriði í áliti meiri hlutans þar sem meiri hluti utanríkismálanefndar er ekki bara að setja ofan í við sjálfan sig og setja út á eigið frumvarp eða frumvarp meiri hlutans heldur beinlínis að útlista að það að ætla sér að nýta það ákvæði sem sett var þarna inn — þetta snilldarákvæði sem menn klöppuðu sér mikið á bakið fyrir, að Alþingi gæti eftir sem áður farið á svig við þessa nýju bókun 35 — gengi beinlínis gegn skuldbindingum Íslands. Með leyfi forseta les ég hér upp fáeinar línur úr áliti meiri hlutans varðandi þetta mál en þar segir:
„Alþingi verður eftir sem áður frjálst að samþykkja lög sem hafa að geyma ákvæði sem stangast á við ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.“
Þetta var snilldin en svo segir í framhaldinu:
„Frumvarpið gerir þó ráð fyrir að standi vilji löggjafans til að setja slíkt ákvæði, sem gengur í berhögg við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands …“
Hér er meiri hlutinn að tala um eigin lausn, undirstrikar það að standi vilji löggjafans til að gera slíkt, setja slíkt ákvæði sem gengur í berhögg við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands, „skuli það liggja skýrt fyrir enda má ganga út frá því að almennt sé reglum landsréttar ætlað að vera í samræmi við þær skuldbindingar.“
Með öðrum orðum, frú forseti, hér er verið að lýsa því að það sem átti að heita lausnin á þessu máli og varð til þess að einhverjir endurskoðuðu afstöðu sína og sögðu að þarna væri komin tæknileg brella sem gerði þinginu kannski kleift að samþykkja þetta og leysa þetta — en í áliti þess meiri hluta sem mælir með málinu er séð ástæða til að undirstrika að það væri í rauninni algjör fásinna að nýta þann möguleika, enda væri með því verið að ganga gegn skuldbindingum Íslands og að slíkt myndi ganga gegn almennum reglum landsréttar.