156. löggjafarþing — 60. fundur, 13. júní 2025.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 507, um fullnustueignir Íbúðalánasjóðs, frá Þorsteini Sæmundssyni.
Einnig hefur borist bréf frá umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 552, um Evróputilskipun um fráveitumál, frá Ólafi Adolfssyni.