156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

gestakomur í atvinnuveganefnd.

[11:01]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég verð enn einu sinni að leita aðstoðar virðulegs forseta. Nú háttar svo til að nefndarmenn í hv. atvinnuveganefnd voru upplýstir um að það yrði haldinn aukafundur á morgun, laugardag, þar sem áform væru uppi um að nefndin myndi ræða og afgreiða nefndarálit vegna veiðigjalda. Það sem mig langar til að biðja virðulegan forseta um aðstoð við er að nú í gærkvöldi fengum við nefndarmenn, eftir að beiðni hafi verið send þar um, sennilega fyrir í námunda við tíu dögum síðan, upplýsingar frá Skattinum, útreikninga sem leiddu fram töluvert miklar skekkjur í útreikningum ráðuneytisins og þeim gögnum sem liggja til grundvallar og eru leidd út í frumvarpinu sjálfu. Það var óskað eftir því í snemma í morgun að fá Skattinn fyrir nefndina til að fara yfir þetta atriði og þetta misræmi. Því hefur verið hafnað. Ég vil biðja virðulegan forseta, í ljósi þess að allt bendir til að nægur tími sé til þingloka, að hlutast til um það að nauðsynlegar gestakomur fái að halda áfram og klárast vegna veiðigjaldsins í atvinnuveganefndinni og sérstaklega (Forseti hringir.) verði tryggt að Skatturinn geti komið til fundar við nefndina og útskýrt hvernig þær tölur sem koma fram í þeim gögnum (Forseti hringir.) sem birtust í gærkvöldi eru leiddar fram, hvar mistök atvinnuvegaráðuneytið liggja og þar fram eftir götunum.