gestakomur í atvinnuveganefnd.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það sem hér kom fram hjá hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Ég vil einnig nefna það að maður upplifir vinnubrögðin í hv. atvinnuveganefnd á þann veg að ekki sé hægt að líkja því við annað en algjört ofbeldi og það þegar svona grundvallarupplýsingar eru að koma fram nánast á síðustu klukkutímunum eins og eru að koma frá Skattinum, sem varða grundvallaratriði í þessu máli, og okkur er neitað um að fá þá á fund nefndarinnar. Það er síðan hægt að nefna fjölda umsagnaraðila sem ekki hafa fengið tækifæri til að koma fyrir nefndina. Ég vil til að mynda nefna Byggðastofnun, þar sem eru sérfræðingar á þessu sviði, þegar kemur að byggðamálum í landinu — hafnað ítrekað. Fjármálafyrirtækin sem öll eru byrjuð að reikna sig inn í áhrifin af þessum veiðigjöldum á skuldastöðu fyrirtækja í mismunandi stærðum — hafnað. Svona getum við talið upp listann endalaust, virðulegur forseti, og ekki er hægt að líkja þessu við annað en algjört ofbeldi í vinnubrögðum. Fyrir utan það náttúrlega hversu hróplega óvönduð vinnubrögð er um að ræða í þessu mikilvæga máli.