gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Ég tek undir það sem hv. þm. Jón Gunnarsson kemur inn á varðandi störf atvinnuveganefndar. Við erum með risastór mál þar undir og höfum verið með að undanförnu og síðan hafa bæst í hópinn á allra síðustu vikum stór mál eins og um strandveiðar. En það að neita að fá t.d. umsagnaraðila eins og Byggðastofnun fyrir nefndina og fá upplýsingar sem snúa að byggðum landsins — þetta er grundvallarmál, þekkja þorpin og þekkja þetta umhverfi gríðarlega vel. Þetta tengist náttúrlega öðrum málum, strandveiðum og slíkum hlutum. En við verðum að vanda okkur og gera miklu betur þegar við erum að vinna þessi veiðigjöld heldur en hér hefur verið unnið. Hér er ekkert verið að hugsa um annað en að fara eins hratt yfir og hægt er. Það er skammtaður tími, stuttur tími tekinn fyrir umsagnaraðila, stuttur tími til að ræða við stóra umsagnaraðila sem koma fyrir nefndina. Ég held t.d. að þetta sem er bent á varðandi fjármálastofnanir, Byggðastofnun, og svo (Forseti hringir.) náttúrlega ótrúlegt mál sem er að koma núna varðandi Skattinn — það er farið með ranga tölfræði sem er undirstaðan á bak við frumvarpið.