156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

gestakomur í atvinnuveganefnd.

[11:05]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Fyrst vil ég byrja á því að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir sína athugasemd hvað varðar Skattinn. Við erum byrjuð að vinna nefndarálit og tekið verður tillit til þeirra sjónarmiða sem þar koma fram. En það er fáránlegt að vera að kvarta og kveina undan gestakomum, að einhverjir fái ekki að koma hér með athugasemdir um frumvarpið. Það hafa komið yfir 50 gestir á fundi nefndarinnar og þetta skæl og væl í hv. þingmanni er bara ekki við hæfi, að fullorðnir menn skuli koma hingað upp þegar verið er að vanda til vinnubragða í þessu máli finnst mér ekki vera þeim til sóma. Það er virkilega verið að vinna þetta mál vel og ég vil hæla sérstaklega hv. þm. Eiríki Birni Hjálmarssyni.

(Forseti (ÞSv): Hann er Björgvinsson.)

Hann er framsögumaður málsins. Mér finnst ekki við hæfi að gera lítið úr þeim vinnubrögðum sem hafa verið viðhöfð.