gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Til að byrja með til upplýsingar fyrir hv. þingmann, formann atvinnuveganefndar, þá er Eiríkur Björgvinsson, svo því sé haldið til haga. En ég kem hingað, frú forseti, til að taka undir með mínum félögum. Það er nú einu sinni þannig að við erum í risastóru máli. Vissulega hafa okkur verið sýnd ákveðin liðlegheit og annað en við megum ekki gleyma því heldur að við sýndum ákveðinn sveigjanleika, minni hlutinn, með það að byrja fundi klukkan átta á morgnana eða hálfníu. Það er líka ákveðinn sveigjanleiki. Við erum að sýna fram á það að við viljum vinna almennilega í málinu og varðandi þær óskir sem koma frá okkur um gestakomur og annað þá er bara mjög eðlilegt og mjög mikilvægt að koma þeim áfram. Í ljósi þessa þá verðum við áfram í þessari hringavitleysu sem hefur verið hér undanfarið. (Gripið fram í: Í boði hverra?)