gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Ég vil bara taka undir orð minni hlutans í nefndinni. Ég sit sjálfur ekki í nefndinni en það eru ekki góðar fréttir að heyra að ekki sé hægt að fá fyrir nefndina aðila sem skipta máli varðandi umsagnir. Ég held að vinnubrögðin hafi breyst töluvert í nefndunum frá því að við byrjuðum hér þing. Ég þekki það alla vega úr minni nefnd að vinnubrögðin hafa breyst til hins betra. En það virðist vera að í einhverjum nefndum sé enn eitthvert strögl að fá gesti fyrir nefndina, frú forseti, og það er eiginlega ekki boðlegt lýðræðisins vegna. Þetta eru ekki bara einhverjir aðilar sem er verið að boða hér fyrir nefndina. Við erum að tala um Byggðastofnun og fleiri sem geta haft töluverð áhrif. Það er bara virðingarleysi að bjóða ekki þessum aðilum að koma og tala fyrir nefndinni. Við urðum vitni að því hér þegar ungu fólki var ekki boðið að koma fyrir allsherjar- og menntamálanefnd, það urðu ákveðnir eftirmálar af því. Ég held að það væri sómi að því að menn fengju að koma fyrir nefndir í stað þess að keyra málin bara áfram.