gestakomur í atvinnuveganefnd.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp og vísa til fyrri orða sem ég lét falla um þetta mál áður, ég hafði áhyggjur af því að hv. formaður atvinnuveganefndar hefði rétt minni hlutanum litla fingurinn en þau væru nú að reyna að rífa af honum alla hendina. Hér erum við að fjalla um mál þar sem var sett Íslandsmet í umræðu í þingsal, lengsta 1. umræða í sögu Alþingis. Málið hefur fengið ítarlega umfjöllun í nefndum þingsins, yfir 50 gestakomur og svo þegar á að afgreiða málið þá er allt ómögulegt, allt er órætt og eftir að fá gesti. Þetta er náttúrlega bara firra. Ég óttast það og ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmenn séu að boða það hér, leggja drög að því sem hefur kannski blasað við mörgum hingað til, að þau eru einfaldlega reyna að stoppa málið af því að þau eru því ósammála. Þetta snýst ekki um formið. Þetta snýst um það að hv. þingmenn minni hlutans eru að standa vörð um sérhagsmuni stórútgerðarinnar, vilja ekki að við veiðigjaldinu sé hróflað og eru því að festa sig í forminu.
Hæstv. forseti. (Forseti hringir.) Ég tel miður að það sé verið að beina þessum orðum til forseta eða hv. formanns atvinnuveganefndar því hér er vandað til verka hjá öllum nema stjórnarandstöðunni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)