gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Ég get ekki sagt annað en heyr á endemi, við orð virðulegs hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar, sem komu hér fram rétt áðan. Staðan er bara sú að það er alveg sama til hvaða nefndar er litið þar sem flókin mál eru til umfjöllunar, gestakomur endurspegla öll þau sömu skilaboð að það sé ekki hlustað af fulltrúum meiri hlutans, rök sem sett eru fram hrökkvi eins og vatn af gæs, hver sem þau eru, í atvinnuveganefndinni. Þetta eru ekki fulltrúar stórútgerðarinnar sem eru þar í „lange baner“, þetta eru sveitarfélög, þetta eru nýsköpunarfyrirtæki, þetta eru aðilar sem hafa áhyggjur af vinnslum landið um kring og þar fram eftir götunum. Í efnahags- og viðskiptanefnd eru þetta lífeyrissjóðirnir og svo mætti áfram telja. Allir komast þessir aðilar að sömu niðurstöðu og hún er sú að mál þessarar ríkisstjórnar séu vanbúin, þau séu ótæk. Það er fráleit mynd sem virðulegur hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson teiknar upp og hún er þeirrar gerðar að það bendir til þess að það sé enginn skilningur á störfum þessara nefnda hjá þeim sem fara fyrir skipulagi mála nú um stundir hjá þessari svokölluðu verkstjórn, (Forseti hringir.) í öllu falli er myndin sem teiknast upp allt önnur. Það er bara hægt að spyrja umsagnaraðila hver viðbrögð fulltrúa meiri hlutans eru í þessum nefndum þar sem staðan er snúið.