gestakomur í atvinnuveganefnd.
Virðulegur forseti. Væl og skæl meiri hlutans yfir því að stjórnarandstaðan sé hér að sinna sínu lýðræðislega hlutverki. Ég ætla að minna hv. þingmenn á það að Íslandsmetið sem slegið var í 1. umræðu um veiðigjöldin var slegið af stjórnarliðum. Gott að þeir mættu til umræðunnar, mjög gott. Við áttum hér málefnalega og góða umræðu. Þar var m.a. sagt að að sjálfsögðu yrði þetta mál unnið vel í nefnd. Að sjálfsögðu yrði boðað til allra gestakoma og að sjálfsögðu yrði hlustað á gagnrýnisraddir. Nei, núna er öldin önnur. Nú á að rífa málið út úr nefndinni og inn í þingsal og stjórnarliðar kvarta yfir því að hér eigi sér stað lýðræðisleg umræða og að við gerum kröfu um lýðræðisleg og vönduð vinnubrögð. Það er allt á sömu bókina lært í þessum þingsal, virðulegur forseti. Hér kemur hvert málið á eftir öðru frá þessari ríkisstjórn sem er illa unnið og illa ígrundað með lélegan rökstuðning og stjórnarliðar vilja ekki einu sinni hlusta inni í nefndum.