gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Hér er kvartað undan því að það sé verið að nota orð á borð við væl og skæl, en tekið af mikilli einbeitingu og einbeitni undir orð um að hér sé verið að beita ofbeldi. Hér sé verið að veita ofbeldi, það má segja og það má taka undir hér í löngum röðum en ef menn tala um væl og skæl þá fara menn að vera litlir í sér og kvarta. Hér var sett Íslandsmet í 1. umræðu um veiðigjöld. Það er búið að taka inn fjölmarga gesti. Það er búið að taka tillit til fjölmargra sjónarmiða. Það er ekkert lýðræðislegt við það að minni hluti stöðvi mál meiri hlutans. Það er bara ekki lýðræðislegt, það er bara svo einfalt. Hér held ég að stjórnarandstaðan þurfi aðeins að gyrða sig í brók og ofureinfaldlega viðurkenna það að þau eru efnislega ósammála málinu og þau geta ekki sætt sig við að meiri hlutinn er ofureinfaldlega ósammála þessum efnislegu rökum og það er eðlilegt að málið komi til afgreiðslu auðvitað í þingsal. (Forseti hringir.) Það er ekki verið að beita hér neinu ofbeldi. Ég ætla að hvetja hv. þingmenn til þess að gæta að því hvernig þau forma og orða hlutina.