gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Fyrir ykkur sem misstuð af líflegri umræðu hér í nótt um bókun 35 þá var komin mikil umræða um raunveruleikaþætti og raunveruleikaþátt Miðflokksins sem við vorum öll að taka þátt í hér í gær í beinni útsendingu. Ég hvet fólk til að horfa á upptökur af því, þetta var skemmtilegt og áhugavert. Hér var því haldið fram að fólk úti í bæ væri farið að líta á þessa umræðu sem einhvers konar, með leyfi forseta, Love Island-raunveruleikaþátt. Ég veit þá ekki alveg hvers konar þáttur vinna atvinnuveganefndar er, einhvers konar True Detective-stemning, ég veit ekki alveg hvernig maður lýsir því. En ég ætlaði bara að koma hér upp sem nefndarmaður í atvinnuveganefnd og segja að mín upplifun hefur verið sú að við erum að vanda vel til verka, við erum búin að taka yfir 50 gesti, hlusta á sjónarmið. Ég ætla að biðja hv. þingmenn í minni hlutanum að lesa það nefndarálit sem mun koma og taka síðan ákvörðun um það hvernig brugðist er við eftir það.