156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

gestakomur í atvinnuveganefnd.

[11:18]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir ábendingar á liðnum vetri frá reyndum hv. þingmönnum sem hafa jafnvel gegnt ráðherrastöðu og verið formenn í nefndum, en þeir hafa kannski ekki mikla reynslu af því að vera í stjórnarandstöðu. Það er auðvitað þannig að þegar meiri hlutinn er búinn að vanda vel til verka, komast að því að það sé búið að fara gaumgæfilega yfir málið, fá öll sjónarmið fram, þá er kominn tími til þess að setja punkt fyrir aftan málið og ljúka því og fá þá umræðuna hér inn í þingsal. Ég vil benda hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur á það að það er ekkert ólýðræðislegt við það að ljúka máli í nefnd með meiri hluta og fá það hingað í umræðuna. Þegar menn tala um það síðan hér og gefa það í skyn að það eigi að draga umræðuna mikið á langinn vegna einhverra vinnubragða þá held ég að þeir sem hafa þau orð uppi ættu að líta aðeins á það hvernig umræðan er hér nú þegar. Þeir ættu aðeins að líta í eigin barm hvað það varðar þegar menn eru að tala um vandaðan málflutning og vandaða málsmeðferð.