gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Það er gríðarlega mikilvægt að það fari fram góð vinna í nefndum þingsins, málin fái málefnalega og góða umfjöllun og það sé farið yfir gögn. Við í þessum þingsal fáum ekki gesti frá Skattinum til að ræða málin. Við fáum ekki gesti frá Byggðastofnun til að ræða málin. Við fáum ekki gesti frá fjármálastofnunum landsins til að ræða málin hér í þingsal. Sú umræða fer fram í nefndum þingsins og þegar fram koma óskir þingmanna um að fá gesti sem snúa að grunnatriðum mála þá er eðlilegt að verða við því. Byggðastofnun er klárlega einn helsti aðilinn sem ætti að koma fyrir atvinnuveganefnd þegar við erum að ræða þessi mál. Við fengum örskamma stund í morgun með öðrum aðila, með Hafró, til að ræða strandveiðarnar, hálftíma. Þetta er nefnilega alveg ótrúlegt hvernig þetta hljómar hérna. Í þessu máli er um landsbyggðarskatt að ræða, þetta hefur gríðarleg áhrif á landsbyggðina. Skattsporið er sjö- eða áttfalt hærra á landsbyggðarfólk heldur en á höfuðborgarbúa. Þess vegna er grunnatriði að Byggðastofnun komi fyrir atvinnuveganefnd til að kynna sitt álit á þessu máli sem varðar grundvallarhagsmuni landsbyggðarinnar.