156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

gestakomur í atvinnuveganefnd.

[11:20]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Þessi umræða er auðvitað ótrúleg. Maður er eldri en tvævetur á þessu þingi og umræðan hér um þetta mál og hverju var lofað um umfjöllun í nefndinni — við það hefur ekki verið staðið. Svo koma hér hv. þingmenn eins og Sigmar Guðmundsson og er fastur í því hve löng umræðan var í 1. umræðu um málið. Við getum talað um stærri mál sem hafa komið hér fyrir þingið eins og útlendingamál sem Sjálfstæðisflokkurinn þurfti að koma margoft með inn í þingið af því að flokkarnir sem sitja hér í ríkisstjórn stóðu m.a. gegn því. En hv. þm. Sigmar Guðmundsson fór þá sjálfur 29 sinnum í pontu. Hv. þingmenn sem töluðu einna mest í þessu máli, Jón Gunnarsson og Jens Garðar Helgason, fóru sjaldnar í pontu í þessu máli. Það má líka nefna að í vinnu allsherjar- og menntamálanefndar í því mikilvæga máli, stóra máli sem er þegar farið að skila árangri í færri umsóknum, sem þessi ríkisstjórn nýtur góðs af, voru allir umsagnaraðilar teknir fyrir nefndina og unnið vel úr málinu og það var síðan loks samþykkt hér af hv. þingmönnum sem þykjast nú allir styðja málið.