156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

gestakomur í atvinnuveganefnd.

[11:22]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Það er líka ágætt að minna á það sem vel er gert og þegar góð vinnubrögð eru stunduð. Það var t.d. í atvinnuveganefnd í morgun þegar hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir, framsögumaður í mjög flóknu máli, var með vinnubrögð sem eru upp á tíu. Það er það sem við erum að kalla eftir og það er það sem við erum að beina að framsögumanni veiðigjaldamálsins, að viðhafa sömu vinnubrögð og Eydís Ásbjörnsdóttir hafði í sínu máli. Það var algjörlega til fyrirmyndar. Það nefndarálit lá í fjóra daga hjá nefndarmönnum atvinnuveganefndar og það var vel kynnt og vel unnið. Það er það sem við erum að benda á. En að ætlast til þess að á morgun sé fundur í atvinnuveganefnd þar sem málið verður tekið út — við þurfum tíma til að glöggva okkur á málinu. (Forseti hringir.) Ég hef alveg fulla trú á hv. þm. Eiríki Björgvinssyni hvað það varðar, eins vandaður maður og hann er, að það verði vel unnið. En við þurfum tíma, við hv. þingmenn í minni hluta, (Forseti hringir.) til þess að glöggva okkur á málinu og kynna það fyrir okkar þingflokkum.