gestakomur í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Ég held að það sé afar mikilvægt í ljósi þessarar umræðu sem á sér stað núna undir þessum lið, fundarstjórn forseta, að koma því skýrt á framfæri að rökin sem hæstv. ríkisstjórn lagði fram varðandi veiðigjaldið, vegna stutts tíma í samráðsgátt, voru að málið ætti að fá nægan tíma hér í þingsal í umræðu. Síðan kemur hér upp hver stjórnarþingmaðurinn á fætur öðrum og kvartar yfir því að við höfum gefið okkur tíma í umræðu um þetta mál. Þetta mál er lagt fram án greininga og án áhrifamats. Reyndar er það dæmi um fleiri mál sem hæstv. ríkisstjórn er að leggja fram hérna þessa dagana. Það er mikilvægt að við gefum okkur tíma, og ég tala nú ekki um þegar umsagnir berast sem sýna svart á hvítu að hljóð og mynd fara ekki saman, annars vegar það sem ríkisstjórnin er að leggja fram í frumvarpi og hins vegar það sem viðkomandi aðili eins og Skatturinn í þessu tilfelli leggur fram. Þetta þarf að greina og það þarf að fá skýringar í nefndinni varðandi þetta. Það er ábyrgt að gera það. Ég hvet hæstv. forseta til að verða við beiðni okkar um að hér verði kallaðir til gestir í þessari nefnd.