156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

þingleg meðferð frumvarps um veiðigjald.

[11:26]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Svo ég haldi nú áfram í því þema sem er augljóst að stjórnarandstaðan hefur miklar áhyggjur af, varðandi þinglega meðferð sem í því risastóra máli sem um ræðir og kemur af hálfu hæstv. ráðherra, þá langar mig að byrja á því að nefna að ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að sitja með ráðherra í nefnd hér á fyrra kjörtímabili þegar hún var hv. þingmaður stjórnarandstöðunnar. Ég tók þátt í ljómandi góðu starfi með þá hv. þingmanni um ákveðnar breytingar í nefnd og bara í því lýðræðislega samtali sem er æskilegt og er í rauninni verkefni okkar, lýðræðislega verkefni, burt séð frá því hver síðan vinnur eða verður ofan á og það er auðvitað bara atkvæðagreiðsla sem ræður afli og það er gott og vel. Því kemur á óvart, frú forseti, hvernig hæstv. ráðherra hefur kosið að tjá sig um það mál sem hér er undir. Í 1. umræðu málsins kom hún hér og var í þeirri góðu umræðu og þá ekki síst af hálfu stjórnarliða, sem er vel. Hún þurfti síðan frá að hverfa. En staðgengill hennar gat ekki sýnt þinginu þá virðingu að taka þátt til loka þeirrar umræðu, sem var mikil synd. En þar endar aðkoma ráðherra að málinu. Það fer síðan í þinglega meðferð. Þetta mál var mjög stutt í samráði. Það var sagt að það myndi fá enn þá betri þinglega meðferð og núna heyrum við athugasemdir, réttmætar athugasemdir þeirra nefndarmanna sem upplifa ekki að það sé verið að taka nógu vel utan um málið. Á sama tíma segir hæstv. ráðherra, núna síðast fyrir tveimur dögum síðan, opinberlega að það sé algjörlega fráleitt að málið muni taka einhverjum breytingum. Málið er í vinnslu þingsins í því lýðræðislega samtali sem af okkur er krafist. Algerlega fráleitt, frú forseti.

Því vil ég byrja á að fá að spyrja hæstv. ráðherra: Leggur hún einhverja aðra skilgreiningu í það höfuðeinkenni íslenskrar stjórnskipunar sem er þrígreiningin og hver er munurinn í hennar huga á löggjafarvaldi og framkvæmdarvaldi, því að hér fer ekki saman hljóð og mynd?