þingleg meðferð frumvarps um veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Hildi Sverrisdóttur, fyrir ágæta upprifjun, þó að ég kannist ekki við þau orð mín að það sé fráleitt að málið taki nokkrum breytingum. Hafi ég einhvers staðar sagt það þá er það augljóslega mismæli hjá mér enda liggur fyrir að ráðherra hefur ekki slíkt umboð yfir þinginu, yfir málum í þinglegri meðferð. Ég kann að hafa sagt að ákveðin ummæli einstakra hagsmunaaðila væru ekki til þess fallin, að mínu mati, að breyta málinu og það er réttur minn að segja slíkt. En ég árétta að það er að sjálfsögðu þingsins, þingleg meðferð, sem skiptir máli. Ég er mjög ánægð með störf hv. atvinnuveganefndar sem hefur kallað til fleiri gesti en vanalegt er í þessum málum, haft víðtækt samráð. Og mér skilst, án þess að ég geti fullyrt það, að fram muni koma ákveðnar breytingartillögur í meirihlutaáliti. Og ég segi meirihlutaáliti vegna þess að það virðist alveg ljóst af orðræðu minni hlutans hér, sama hve oft hann kallar á frekari umfjöllun, og hefur verið ljóst frá upphafi, að enginn þingmaður minni hlutans styður þetta ágæta mál.